Námið

Meginmarkmið félagsráðgjafanáms


Nám í félagsráðgjöf miðar að því að veita nemendum fræðilega undirstöðu og þjálfun til að starfa við ráðgjöf og meðferð einstaklinga, fjölskyldna og hópa, undirbúning til að sinna stjórnun þjónustustofnana og stefnumörkun í á sviði heilbrigðis- og félagsmála, aðferðafræðilega þekkingu og þjálfun til að stunda rannsóknir tengdum vettvangi félagsráðgjafar. Kennsla í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands grundvallast á þeirri hugmynd að grunnnámið skuli:

  • tryggja að nemendur öðlist heildarsýn á samhengi einstaklings- og samfélagsþátta og tileinki sér siðfræði félagsráðgjafar,
  • veita nauðsynlegan undirbúning til löggiltra starfsréttinda fyrir almenn félagsráðgjafarstörf,
  • veita trausta undirstöðu fyrir framhaldsnám á sérsviði.

Hvað gera félagsráðgjafar?

Félagsráðgjafar starfa aðallega við meðferð og þjónustu í þágu skjólstæðinga einkum á sviði félags-og heilbrigðisþjónustu og í mennta- og dómskerfi. Enn fremur starfa félagsráðgjafar við stjórnunar- og skipulagsstörf í félags- og heilbrigðisþjónustu. Þeir starfa m.a. í ráðuneytum, sem félagsmálastjórar, framkvæmdastjórar svæðisstjórna og forstöðumenn í ýmsum stofnunum. Þá starfa félagsráðgjafar að rannsóknum. Auk þess starfa félagsráðgjafar ýmist launað eða í sjálfboðavinnu hjá hagsmunafélögum og frjálsum félagasamtökum. Markmið félagsráðgjafar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar þannig að sérhver einstaklingur geti sem best notið sín í eigin lífi og í samfélaginu.

Félagsráðgjöf er fag sem er örri þróun og á hverju ári stækkar starfsvettvangur félagsráðgjafa enda er eftirspurn mikil eftir starfskröftum þeirra.

Auk hinna hefðbundnu sviða innan félags-og heilbrigðisþjónustu starfa félagsráðgjafar í vaxandi mæli í þágu skólakerfisins og í tengslum við réttarkerfið (fangelsis-og dómsmál). Þau svið sem nú eru í hvað mestri þróun eru öldrunarþjónusta og rannsóknir tengdar því málefni. Þá eru fjölmenning og inflytjendamál og sjálfboðageirinn vaxandi málaflokkar auk ýmissa málefna sem tengjast æ fjölbreytilegra mannlífi og nýjum lífsháttum.

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 182
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 402334
Samtals gestir: 92874
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:49:01