Færslur: 2012 Janúar
30.01.2012 21:51
Miðasala á árshátíð
Elsku mentorar.
Fyrsti í miðasölu hefst á miðvikudaginn næsta fyrir okkar komandi dýrðlegu árshátíð sem að þessu sinni verður haldin föstudaginn 10. febrúar í samstarfi við nemendafélagið Nörd.
Á morgun verða aðeins seldir miðar til félagsmanna Mentor og Nörd en á fimmtudag og föstudag er öllum frjálst að fjárfesta.
Miðaverð fyrir félagsmenn er 4500 íslenskar krónur en fyrir aðra eru þær 5500.
Miðasalan mun fara fram í Háskólabíó á eftirfarandi tímum:
-Miðvikudaginn 1. feb kl. 12:00-15:00
-Fimmtudaginn 2. feb kl. 12:00-15:00
-Föstudaginn 3. feb kl. 10:30-13:30
-Mánudaginn 6. feb kl. 12:00-15:00
Takið þessu þó með fyrirvara því ef miðarnir klárast verður miðasölunni að sjálfsögðu hætt fyrr og því um að gera að tryggja sér eintak sem fyrst!
Hlökkum til að sjá ykkur kæru vinir
Stjórnin
P.s. Látum fylgja smá góðgæti með þessu..
Dagskrá kvöldsins:
19:00 Húsið opnar og fyrir þá fyrstu þyrstu verður fordrykkur
20:00 Borðhald hefst með veglegum veitingum frá Veislunni ehf.
21:00 mun árshátíðarmyndband Mentor og Nörd vera frumsýnt og er mikil eftirvænting eftir því.
22:00 Stuðbandið Goðsögn mun spila undir dansi frá 22:00
02:00 Rútur munu ferja okkur niður í miðbæ Reykjavíkur þar sem við málum bæinn rauðan.
-----
Matseðill kvöldsins:
Mexikóskt hlaðborð
Með fordrykknum þínum:
Nachos & ostasósa
Kalt:
Appelsínu marineruð lúða "Seviche"
Laxaþynnur með chili & lime
Túnfisksalat með nýrnabaunum & gucamole
Nautalundir með gráðostakremi & rifsberi
Kalkúnasalat með osta-quesadillas
Heitt:
Chili con Carne
Burritos með svínakjöti
Quesadillas með lambakjöti
"Buffalo" kjúklingaleggir
Meðlæti:
Lárperumauk, steikt hrísgrjón, salsasósa, sýrður rjómi, ferskt salat, nýbökuð brauð, tapenade & olíur.
Eftirréttur:
Óvissuferð um spennuheima

Skrifað af Mentor
11.01.2012 17:08
Fyrsta gleði á vorönn
Hæhæ!
Breyting hefur orðið á föstudeginum hjá okkur. Atlantsolía getur ekki tekið á móti okkur á föstudaginn en munu vonandi gera það seinna á önnini. En við látum það ekki stoppa okkur í gleðinni! Í staðinn ætlum við að halda okkar eigin "vísindaferð" þar sem við munum bjóða upp á bjór og hvetjum ykkur til að kaupa dýrindis humarsúpu og snæða með okkur (hun mun aðeins kosta 1100 kr. á manninn). Mæting verður kl. 18:00 á efri hæð Sægreifans sem er staðsettur við Geirsgötu 8 (í litlu bláu húsunum við höfnina í Reykjavik). Þar munum við drekka, borða og skemmta okkur saman til kl. 22:00. Þá munum við halda saman á Glaumbar þar sem snilldar tilboð verða í boði fyrir þá sem eiga nemendakort, bjór 290kr og skot á 290 kr. Aðeins er pláss fyrir 30 manns á Sægreifanum og mun því skráning hefjast kl. 20:00 miðvikudaginn 11.janúar (semsé Í KVÖLD). En ef þið fáið ekki pláss með okkur þá hvetjum við ykkur til að mæta á Glaumbar kl. 22 !
Hlökkum til að sjá ykkur og tökum vel á móti nýnemunum sem voru að byrja!
Kv. Stjórnin

- 1
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 182
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 402334
Samtals gestir: 92874
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:49:01