11.10.2011 16:46

í tilefni 100 ára afmæli HÍ og 30 ára afmæli félagsráðgjafardeildar

Við vorum beðnar um að koma þessum upplýsingum á framfæri.. 

áhugaverðir fyrirlestar, endilega ef þið hafið tíma að fara og hlusta :)


Börn,feður og fjölskyldutengsl - þrælkun, þroski, þrá. Aldarafmælisviðburður í Háskóla Íslands Hefst: 18/10/2011 - 11:40 Lýkur: 18/10/2011 - 13:10 Staðsetning: Háskólatorg, stofa 101 Í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands og 30 ára kennsluafmæli félagsráðgjafardeildar fléttar félagsráðgjafardeild saman fyrirlestri og ljósmyndum um börn, vinnu og feður. Fundarstjóri er Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf. 11:40-12:00 Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur og aðjúnkt við Listaháskóla Íslands fjallar um tilurð ljósmynda Guðbjarts Ásgeirssonar og leiðir gesti í gengum ljósmyndasýninguna Þrælkun, þroski og þrá. Sýningin fjallar um börn við vinnu á sjó og í landi. Hún vekur upp spurningar um vinnumenningu og barnauppeldi á Íslandi á 20. öld. Ljósmyndunum er ætlað að opna umræðu og hvetja fólk til að skoða fortíðina í nýju samhengi. Þær vekja upp spurningar er varða viðhorf til barnavinnu, aðbúnað og vinnuskilyrði barna og samskipti sjómanna og barna. 12:00-12:30 Anni G Haugen lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands fjallar um feður í barnavernd. 12:30-13:10 Pallborðsumræður; Ingólfur V. Gíslason dósent í félagsfræði, Páll Ólafsson félagsráðgjafi, Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur og aðjúnkt og Anni G Haugen lektor http://www.hi.is/vidburdir/born_fedur_og_fjolskyldutengsl_thraelkun_throski_thra Saga, samfélag, siðfræði - félagsráðgjöf í hálfa öld. Aldarafmælisviðburður í Háskóla Íslands Hefst: 20/10/2011 - 16:00 Lýkur: 20/10/2011 - 17:30 Staðsetning: Oddi, stofa 101 Í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands og 30 ára kennsluafmæli félagsráðgjafar á Íslandi munu starfandi félagsráðgjafar segja frá sinni upplifun og þeim veruleika sem blasti við þeim þegar þau útskrifuðust sem félagsráðgjafar. Fundarstjóri er Halldór S. Guðmundsson, lektor í félagsráðgjöf. 16.00 Ávarp deildarforseta, Dr. Steinunn Hrafnsdóttir 16.00 - 16.20 Guðrún Sigríður Jónsdóttir, félagsráðgjafi. Guðrún lauk prófi í félagsráðgjöf frá Social institutet í Gautaborg árið 1957. Hún hefur viðamikla starfsreynslu á starfsvettvangi félagsráðgjafar og starfaði m.a. sem kennslustjóri í félagsráðgjöf við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands 1981-1992. Guðrún hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 2007 fyrir frumherjastörf í félagsráðgjöf og framlag til réttindabaráttu. 16.20 - 16.40. Gunnar Sandholt, félagsráðgjafi. Gunnar lauk prófi í félagsráðgjöf frá Norges kommunal- og sosialhøgskole í Osló árið 1975. Gunnar hefur fjölbreytta starfsreynslu sem félagsráðgjafi og hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri Fjölskyldu- og þjónustusviðs hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. 16.40-17.00 Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsráðgjafi. Inga Vildís lauk prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands í júní 2011 og hefur því nýhafið sína vegferð sem félagsráðgjafi á Íslandi. 17.00-17.30 Pallborðsumræður; Guðrún, Gunnar og Inga Vildís Að loknum pallborðsumræðum býður félagsráðgjafardeild til móttöku í tilefni af 30 ára kennsluafmæli í félagsráðgjöf. http://www.hi.is/vidburdir/saga_samfelag_sidfraedi_felagsradgjof_i_halfa_old Með kveðju Ásdís Ýr Arnardóttir Verkefnastjóri

10.10.2011 22:09

Vísindaferð í Vodafone

Sælir Mentorar :) 

VÍSÓ í VODAFONE !!

- Þessari vísindaferð má engin missa af ! Hún var alveg frábær í fyrra og höfum við heyrt að hún verði ekki í lakari kantinum í ár !

Mæting kl 18:00 í Vodafone Skútuvogi og verður létt kynning á fyrirtækinu og síðan gaman og glens :) 
Verðum með rútur niðrí bæ að kynningu lokini kl 20:00 þannig ekkert beil heim eftir vísó og allir með niðrí bæ þar sem glensið heldur áfram :) 

Skráning hefst á morgun (þriðjudaginn 11. oktober) á slaginu 12 og lýkur kl 16:00 (Miðvikudaginn 12.oktober) 

Fáum að taka 30 með okkur þannig ekki vera of sein að skrá ykkur því fyrstu kemur fyrstur fær og að sjálfsögðu þarf ekki að taka það fram að Mentor korthafar fá forgang. :) JibbíKóla :) 

04.10.2011 17:55

Konu og Karla :)

Halló!! þá er komið að karla og konukvöldi á föstudaginn :D

skráning hefst á heimasíðunni á morgun kl. 12:00 :D

Dagskrá kvöldsins er mæting kl. 20:00 á hressó þar sem bjór

verður í boði fyrir þá sem vilja, kl. 21:30 mætir Jóna

kynlífsráðgjafi og verður með skemmtlega kynningu á spilinu

sínu Kynstur. Eftir hana tekur við leikfangakynning í boði

Amor :) Þetta verður bráð skemmtilegt og fróðlegt kvöld :D


Tillhlökkunar kveðja Mentor emoticon

14.09.2011 14:28

Vísindaferð Hrafnistu

Listi yfir þá sem komast með á Hrafnistu í Kópavogi

Kort = Búin að greiða kort.          --  = Borga 500 kr þegar komið er á Hrafnistu

Einstaklingar sem eiga ekki kort verða að borga á staðnum annars verður þeim ekki hleypt inn í vísindaferðina. Þannig munið að koma með rauða seðilinn svo það verði engin leiðindi.

Sjáumst hress á föstudaginn á slaginu 17:00 , mætið tímanlega því stundum er húsinu lokað eftir vissan tíma.


Regína  Jónsdóttir                          Kort                            

Helga Rún Jónsdóttir                     Kort     

Herdís Borg Pétursdóttir               Kort

Ester Guðlaugsdóttir                    Kort

Lilja S. Jónsdóttir                            Kort

Bryndís Guðmundsdóttir             Kort

Anna Birna Fossberg                      kort

Sara Dögg Vignisdóttir                   Kort

Hafrún Lilja Elíasdóttir                  Kort

Inga Heiða                                       Kort

Anna Kristín Jóhannesdóttir       Kort

Árný Edda Guðjónsdóttir            Kort

Martha María Einarsdóttir         Kort

Sara Dögg Vignisdóttir                 Kort

Steinunn Pétursdóttir                   Kort

Heiður Ýr Guðjónsdóttir              Kort

Arnbjörg Edda Kormáksdótir     Kort

Orka Kristinsdóttir                      Kort

Ásrún   Ýr Rúnarsdóttir                  -

Helga Sigrún Ómarsdóttir         Kort

Arnar Már Bjarnason                 Kort

Þórunn Þórsdóttir                      Kort

Steinunn Alva Lárusdóttir          Kort

Svanhvít Valtýsdóttir                   Kort

Tinna Birgisdóttir                         -

Guðný María                                -

Klara Hjartardóttir                     -

Stella Björg                                  Kort

Ingibjörg Rafnsdóttir                Kort

Anna María Aradóttir              Kort

Sara Lind Kristjánsdóttir           Kort

Elías Helgi Kofoed- Hansen       Kort

Lórey                                           Kort

Solveig Silfá Sveinsdóttir         Kort

Lilja Hrönn Gunnarsdóttir      Kort

Sólveig Ingólfsdóttir                Kort

Unnur Sveinsdóttir                  Kort

Tinna Gunnarsdóttir                    -

Valgerður Ósk Ásbjörnsdóttir    -

Guðný Björnsdóttir                 Kort

Elva Dögg Baldvindsóttir        Kort

Maja Loncar                             Kort

Anna Karen                              Kort

Ólöf Alda Gunnarsdóttir        Kort

Fríða                                          Kort

Rósa Malinee Saifa                   Kort

Guðrún Helga Andrésdóttir    -                       

Kristín Inga Jónsdóttir           Kort

Áróra Arnardóttir                  Kort

Elsa Guðrún Sveinsdóttir      Kort

Sara Mist Jóhannesdóttir      -

Natalie Rut Don                      -

Sunneve Einarsdóttir             -

Ástrós                                     Kort

Salvör                                      Kort

Ólöf Karla Þórisdóttir          Kort                          

 Sara Sif Sveinsdóttir  -

Birna Rut Viðarsdóttir -

Hekla Guðbrandsdóttir -

Sara Lind Kristinsdóttir -


Ef eitthver dettur út þá er sá sem er eftir á biðlistanum sem kemur í staðin fyrir þann aðila :)  ( sendum þeim póst sem komast með í vísó af biðlistanum ) :) 

13.09.2011 21:20

OKTOBERFEST - DAGSKRÁ

Fimmtudagurinn:

 

17:00 Húllumhæið byrjar á Hallvegastíg hjá Ungum Jafnaðarmönnum en þau buðu okkur að koma á viðburð hjá sér og sötra bjór og spjalla. Getum nýtt okkur þetta tilboð til að hita upp fyrir Októberfest en engin Dólgslæti.

 

19:00 - Hefst dagskrá í Tjaldinu á lóð Háskólans og ætlum við að röltum í sameiningu frá Hallvegastíg þangað. 

 

Föstudagurinn:

 

17:00 - VÍSÓ ! Hrafnista í Kópavogi 

 

19:00 - Partý Smartí J Sameinumst Félagsfræðini í party þar sem bjórinn verður á 290 kr og skot á 290 

 

21:00  - Höldum saman í Tjaldið með bros á vör "rararei...ræl.. YES" ;)

 

 

Laugardagur:

 

Hittumst vonandi öll HRESS saman í tjaldinu :)


ANNAÐ :


Bjórinn í tjaldinu kostar 500 kr einnig er hægt að kaupa sér bjórkort sem gefur þér 1 bjór frían og gefur þér aðgang að sérstökum bjórbar sem þýðir styttri raðir og meiri gleði :)


Hlökkum til að sjá ykkur öll um helgina ;) þetta verður ótrúlega skemmtilegt!



09.09.2011 11:14

V to the Í to the S to the Ó ! VÍSÓ !

Eru ekki örugglega ALLIR búnir að næla sér í miða á Oktoberfest ;) ????emoticon  
Fylgist vel með hér á facebook og www.mentor.hi.is því við förum að kynna dagskrána okkar fyrir þessa 3ja daga Oktoberfest vakt ! ;) 

Fyrsta Vísindaferð vetrarins er á föstudaginn. Hrafnista í Kópavogi buðu okkur til sín og hafa vísindaferðir hjá þeim síðustu ár verið með þeim betri  ;);) JÍBBí HúllA ;) 

A.T.H. Takmarkaður fjöldi kemst með svo ekki vera of sein að skrá ykkur :) Þeir nemendur sem eru búnir að borga eða panta nemendakort ganga fyrir. Aðrir borga 500 kr þegar komið er á staðinn ;)  Skráning hefst mánudaginn 12.september kl 13:00 :)

P.s. Enn er tími til að kaupa nemendakort :) sendið email á mentorsson@gmail.com ef ykkur vantar :) 

kær kveðja 
Stjórnin :) emoticon

06.09.2011 14:42

Íþróttalaugardagurinn :D

Hæhæ vinir :D 


Hvað segiði :) okkur var að bjóðast frábært tækifæri á smá öðruvísi degi :D 
Laugardaginn 10. september er okkur boðið að koma upp í Sporthús og eiga góðan dag með 
starfsmönnum Sporthússins og Félagsfræði nemum :D Fyrst verður farið í skotbolta eða brennó með starfsmönnum Sporthússins og síðan verður boðið upp léttan Spinnig, Zúmba og TRX :) Eftir öll átökin verður okkur síðan boðið að koma og hvíla okkur í heitapottunum og gufunni hjá þeim og til þess að setja rúsínuna í pylsu endan verður okkur boðið ómissandi tilboð hjá þeim á skólakorti s.s. 3600 kr á mánuði og kaupauka að verðmæti 40.000 þúsund krónur :)


ENDILEGA ef þið eruð að leita ykkur af ræktarstöð eða viljuð breyta til komið og kynnið ykkur þetta frábæra tilboð og hvernig tíma þau eru með í boði :D

Síðan fara allir heim alveg endurnærðið og taka með sér þessa orku með á OKTOBERFEST sem hefst á miðvikudaginn 15.september :D ( Verður síðar auglýst hjá okkur ) En það er eitthvað sem enginn vill missa af :D 

Húllum hæ-ið í Sporthúsinu hefst kl 14:30 og stendur til sirka 16:30 :D 

Hvetjum alla til að mæta :D :D :D Skráning hefst á morgun kl 12 undir vísó-skráning :) 

bkv Stjórnin 


01.09.2011 22:14

ERTU TIL ??

JÆJA JÆJA JÆJA.. ! þá fer að koma að því Funday + Party.. Það komast allir með á funday sem skrá sig svo endilega bara allir skrá sig svo við vitum hverjir ætla með. Um kvöldið verður síðan haldið Party með Norm Félag Félagsfræðinga EN þar mun kosta 500 kr inn fyrir þá sem ekki hafa pantað sér kort !!! svo kortin eru strax farin að virka. 

FUNDAY byrjar kl 15 og fjörið byrjar kl 15:30 í ODDA :) mætum eftir veðri og góða skapið með. Um kvöldið er síðan PARTY sem byrjar kl 20. og verður það ekki af verri endanum. (þið fáið tíma á milli til að skjótast heim til að gera og græja)
hlökkum til með að sjá sem flesta - en sem komið er verður góð mæting á morgun svo like á ykkur Mentor fólk þið eruð æðisleg :)

KV. uppáhalds stjórnin ykkar :)

30.08.2011 15:57

FUNDAY!!

Sælir elsku Mentor vinir ;)

Við vonumst til að sjá sem flest á morgun 31. ágúst til að kynna sér og panta nemendakort hjá okkur, pulsur og gos verða í boði frá Atlansolíu og ætlum við að gefa fólki færi á því að panta sér dælulykil ;) 


Næsta föstudag 2.september mun fara fram nýnemadagur þar sem við hvetjum alla nýnema og ekki síður eldri nemendur að koma og taka þátt með okkur í þessum stór skemmtilega degi ;) 
Við vitum að nýnemar eiga að vera í tíma hjá Stefáni Ólafs til kl 14:50 þannig við setjum mætingu upp úr 15 fyrir utan hjá Odda ;) (Mæting í síðasta lagi kl 15:30)

Geriði ráðstafanir varðandi hvort þið ætlið að láta skutla ykkur í skólan þennan dýrðar dag svo óþarfa vesen trufli ekki daginn fyrir ykkur. 

Klæðið ykkur eftir veðri því þið fáið tíma eftir FUNDAY að komast heim í sturtu áður en gaman hefst um kvöldið :D Eins og áður kom fram þá tökum við við pöntunum og greiðslum fyrir nemendakortin á morgun og þeir sem panta eða greiða kort fá forgang á FUNDAY en annars kostar 500 inn um  í SUPER PARTÝIÐ á Hallveigarstöðum, en fá þó allir frítt með á FUNDAY ;) 

Partýið er haldið  á Hallveigarstöðum og verður það haldið í sameiningu við NORM ( félagsfræði ). Mæting í glisið byrjar kl 8 :)
Mentor verður með fordrykk sem verður ekki af síðari kantinum en það er ekkert annað en Southern Comfort á boðstólnum :)

Hallveigarstaðir Túngata 14.

Skáning FUNDAY hefst á morgun 31. ágúst hér á www.mentor.hi.is og undir VÍSÓ-SKRÁNING  á slaginu 14:00 og líkur 1.september kl 18:00 :D

Viljum við ítreka við þá sem hafa áhuga að bjóða sig fram sem nýnemafulltrúa að hafa samband við okkur í gegnum email á mentrosson@gmail.com eða lhg3@hi.is.


PS: ÞEMA kvöldins verður Dýraþema ;) hahahaha þannig búið þið ykkur undir þetta dýrslegakvöld ;) 


Bkv 
Stjórnin ;) 





30.08.2011 10:34

Nemendakortin seld!

Elsku börn!

Á morgun - miðvikudaginn 31. ágúst - verðum við í Mentor að selja nemendakortin fyrir þetta skólaár. Það mun fara fram úti á stéttinni fyrir utan háskólatorg (uppi hjá Hámu (en úti)) 
klukkan 12:15 - korter yfir tólf -
Við verðum á Atlantsolíubílnum og dælum pulsum í liðið. 
Við tökum trítilóðar við pöntunum á dælulyklum og verðum með Atlantsolíulukkuhjól þannig þetta verður bara tær SCHENIIIILLLD! 
Endilega komið á morgun og sláið tvær flugur í einu HOJA.
Fjárfestið í nemendakortum Mentors sem er gulltryggð skemmtun og forgangur að fjöri í allan vetur svo við tölum nú ekki um alla afslættina sem fylgja því og eru jú fátækum námsmönnum lífsnauðsyn oog fáið ykkur dælulykil hjá Atlantsolíu.

Nemendakortin í ár kosta 5000 íslenskar krónur og tekið verður við greiðslum í beinhörðum aurum en einnig verðum við með bankaupplýsingar fyrir þá sem aðhyllast millifærslur.

JibbíHÚLLA!

Kveðja, Stjórnin

20.08.2011 10:29

NÝNEMAFJÖR!

jæja kæru vinir!

þið hljótið nú að vera orðin vitlaus af forvitni um hvað eigi nú að gera í vetur.. nóg er framundan svo haldið ykkur fast! 

Nú eru við alveg á fullu að gera nemendakortin okkar, þau verða stútfull af GEÐVEIKUM afsláttum og tilboðum (get ekki beðið að nýta mér þau emoticon  )

FÖSTUDAGURINN 26. ÁGÚST

þá er nýnemakynning Háskólans, um kvöldið er svo nýju nemendunum og þeim eldri boðið í smá BJÓR á nýja heimabarnum okkar H-R-E-S-S-Ó. FLÆÐANDI, já ég sagði FLÆÐANDI tilboð á barnum og allir mæta með góða skapið og við sameinumst á ný emoticon


FÖSTUDAGURINN 2. SEPTEMBER

NÝNEMAGLEÐIDAGUR !!!! gleðin mun byrja um miðjan daginn og mun enda í PARTY í um kvöldið.. 

- nánari upplýsingar um það síðar- 

FUN FUN FUN emoticon 

Þetta ætti að nægja ykkur dúllunum mínum í bili emoticon


Erum enn á fullu að redda og græja og gera svo árið ykkar verði sem MAGNAÐAST 
Við hættum aldrei að plana eitthvað skemmtilegt og gera eitthvað sjúklega sniðugt !! 


STUÐ AÐ EILÍFU 

kv. Uppáhalds stjórnin ykkar


PS. NÝNEMAR! endilega addið okkur á FACEBOOK 

24.07.2011 21:10

Undirbúningur haustsins hefst!

Hæhó Mentor vinir!

Nú erum við stjórnin að setja allt á fullt í undirbúningi fyrir haustið. Enduðum síðasta skólaár með stæl og ætlum að sjálfsögðu að byrja það næsta með glans!

Erum að breyta og bæta síðuna þannig ýmislegt liggur niðri enn um sinn og munu einhverjar upplýsingar sem þið kunnið að lesa á henni núna breytast því ýmislegt er í uppfærslu (eins og til dæmis afslættirnir og fleira). En ekki örvænta, og sérstaklega ekki þið elsku komandi nýnemar því þetta verður legend............wait for it............DARY!!!!
Jú þið lásuð rétt.

Og ef þið fáið einhverjar hugmyndir um gjörninga félagsins fyrir næsta ár ekki hika við að smella pósti á einhvern í stjórninni :)

Annars lofum við frábæru nýnemadjammi í haust, frábærum vísindaferðum og feRRRÁBÆRRI hamslausri gleði allt næsta skólaár. Erum að vinna í þessu eins og enginn sé morgundagurinn.

Svo treystum við jú auðvitað á það að þið njótið nú þess sem eftir er af sumrinu og safnið náms- og djammþrótti svo við getum öll sameinast endurnærð og eyturfersk í haust!

Ást og friður,
Stjórnin

21.06.2011 20:43

SUMARKVEÐJA :)

kæru nemendur og tilvonandi nemendur emoticon  

Mentor hlakkar svo mikið til að fara gera næsta ár súper úber sjúklega skemmtilegt að hluti af sumarvinnu okkar er að hugsa til ykkar og plana eitthvað sem fær ykkur til þess að slefa af tilhlökkun emoticon  

Einnig hlakkar okkur mikið til að sýna nýjum nemendum hvernig á að skemmta sér þrátt yfir að skólinn taki sinn toll, félagslífið lyftir upp námið og ekki er það gömul tugga emoticon

Við vonum að allir njóti sumarsins í botn og brosið þegar sólin skín, því lífið er svo skemmtilegt emoticon  Og svo hittumst við öll næsta haust meira en til í dæmið og tilbúin að mæta á ALLT !! - því það er líka svo skemmtilegt emoticon

Einnig minnum við á Mentor síðuna okkar á facebook þar sem við hvetjum nýnema að adda okkur :) 

kær SUMARKVEÐJA frá uppáhalds stjórninni ykkar, Mentor.  

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 182
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 402334
Samtals gestir: 92874
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:27:25