30.01.2012 21:51

Miðasala á árshátíð

Elsku mentorar.

Fyrsti í miðasölu hefst á miðvikudaginn næsta fyrir okkar komandi dýrðlegu árshátíð sem að þessu sinni verður haldin föstudaginn 10. febrúar í samstarfi við nemendafélagið Nörd.

Á morgun verða aðeins seldir miðar til félagsmanna Mentor og Nörd en á fimmtudag og föstudag er öllum frjálst að fjárfesta.

Miðaverð fyrir félagsmenn er 4500 íslenskar krónur en fyrir aðra eru þær 5500.

Miðasalan mun fara fram í Háskólabíó á eftirfarandi tímum:

-Miðvikudaginn 1. feb kl. 12:00-15:00
-Fimmtudaginn 2. feb kl. 12:00-15:00
-Föstudaginn 3. feb kl. 10:30-13:30
-Mánudaginn 6. feb kl. 12:00-15:00

Takið þessu þó með fyrirvara því ef miðarnir klárast verður miðasölunni að sjálfsögðu hætt fyrr og því um að gera að tryggja sér eintak sem fyrst!

Hlökkum til að sjá ykkur kæru vinir

Stjórnin


P.s. Látum fylgja smá góðgæti með þessu..

Dagskrá kvöldsins:
19:00 Húsið opnar og fyrir þá fyrstu þyrstu verður fordrykkur 
20:00 Borðhald hefst með veglegum veitingum frá Veislunni ehf.
21:00 mun árshátíðarmyndband Mentor og Nörd vera frumsýnt og er mikil eftirvænting eftir því.
22:00 Stuðbandið Goðsögn mun spila undir dansi frá 22:00 
02:00 Rútur munu ferja okkur niður í miðbæ Reykjavíkur þar sem við málum bæinn rauðan.

-----

Matseðill kvöldsins: 

Mexikóskt hlaðborð

Með fordrykknum þínum:
Nachos & ostasósa

Kalt:
Appelsínu marineruð lúða "Seviche"
Laxaþynnur með chili & lime
Túnfisksalat með nýrnabaunum & gucamole
Nautalundir með gráðostakremi & rifsberi
Kalkúnasalat með osta-quesadillas

Heitt:
Chili con Carne
Burritos með svínakjöti
Quesadillas með lambakjöti
"Buffalo" kjúklingaleggir

Meðlæti:
Lárperumauk, steikt hrísgrjón, salsasósa, sýrður rjómi, ferskt salat, nýbökuð brauð, tapenade & olíur.

Eftirréttur:
Óvissuferð um spennuheima
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 182
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 402334
Samtals gestir: 92874
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:27:25