Flokkur: Mentor blaðrar

20.12.2007 21:39

fyrir þá sem ætla djamma alla helgina....

Að þá mælir stjórnin með þessu á LAUGARDAGKVÖLDIÐ..... Hvað er betra en að fagna áframhaldandi próflokum og jólum á dansgólfi Barsins???

Fram koma Helgi Már (Partyzone), DJ Andrés og FKNHDSM dúóið (Haukur Heiðar og DJ Símon)

Sjáumst annars hress á Café París á morgun FÖSTUDAG! sjibbíííííí......




12.03.2007 00:29

Mission árshátíð 2007

Yndislegu félagsráðgjafanemar (og félagsfræðinemar sem kíkið hingað)
við viljum þakka ykkur sem mættuð á árshátíðina í gær kærlega fyrir frábæra kvöldstund.

Við í stjórn Mentors erum í skýjunum yfir því hversu vel kvöldið heppnaðist og vonandi eru allir sammála okkur :)

Maturinn var frábær (gefum kokkunum.is gott klapp)
Plötusnúðurinn var mjög hress og fjölbreyttur (gefum Sigvalda gott klapp)
Leynigesturinn var klárlega frábær (gefum Hebba gott klapp)
Veislustjórinn stóð sig með stakri príði (gefum Gylfa gott klapp)
...og já, ég held barasta að við ættum að gefa kvöldinu eitt stórt gott klapp...

Svo er bara að fara að undirbúa sig fyrir aðalfundinn sem verður í apríl næstkomandi og bjóða sig fram í næstu stjórn...
Missionið er að toppa þessa árshátíð...
Mission impossible???
við skulum bíða og sjá ;)

Með kærri kveðju...
stjórnin

16.12.2006 15:12

Prófatíð líkur brátt :)

Jæja, já...

Þá eru prófin hálfnuð hjá fyrsta árs nemunum... VEI!
Gamanið er alveg að gera útaf við mann í þessum prófalestri...

En vonandi er öllum búið að ganga rosa vel í prófunum :)

Vil nota tækifærið og óska þeim sem hafa lokið misserisprófum haustsins 2006 til hamingju með það :)

Hafið það gott og GLEÐILEG JÓL :)

26.09.2006 18:25

Skráning í vísó

jæja los krúttos, loksins er komið að fyrstu vísindaferð vetrarins. Við ætlum að fara í Persónuvernd n.k. föstudag kl. 16:30. Húsnæði Persónuverndar er afar krúttlegt og lítið, þar með komast aðeins 20 manns með í þessa ferð en liðið ætlar svo að hittast á Victor eftir vísó.

MÆTING: RAUÐARÁRSTÍG 10 KL. 16:30

Skráning fer fram þar sem stendur "skráning í vísó"  og þeir sem skrá sig eru beðnir um að rita fullt nafn, símanúmer og hvort að viðkomandi eigi skírteini eður ei.

Svo minnum við þá sem ekki komast með að mæta á Victor um 8 leytið eftir vísindaferð-dúndrandi gleði fram eftir.......

ATH! SKRÁNINGU LÝKUR Í HÁDEGINU Á FÖSTUDAG-EFTIR HÁDEGIÐ VERÐUR FARIÐ AÐ SKRÁ Í VÍSINDAFERÐINA SEM FARIN VERÐUR Á HRAFNISTU 6.OKTÓBER.........LAAAAAANG VINSÆLASTA VÍSINDAFERÐIN SÍÐARI ÁRA....EKKI MISSA AF!!!!

kv. stjórnin

26.09.2006 16:16

A new era?

verið er að búa til þessa dúndursíðu fyrir okkur í Mentor-sýnið biðlund.

-The forman

 

  • 1
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 182
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 402334
Samtals gestir: 92874
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:27:25